Vá...Prjónaperlurnar eru á top tíu lista yfir mest seldur bækurnar það sem af er janúar :) Ekkert smá gaman og við erum svo stoltar af okkur og perlunum okkar! Og sérstaklega ánægðar með ykkur sem eruð að prjóna upp úr bókinni. Þetta ævintýri hefur gengið svakalega vel og það gleður okkar prjónahjörtu að sjá bókina á svona fínum sölulista :)
Metsölulistinn byggist á upplýsingum frá eftirtöldum verslunum: Bókabúð Máls og menningar, Eskju, Hamraborg, Iðu, Bókabúðin við höfnina (Stykkishólmi), Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum - Eymundsson og Samkaupum. Rannsóknarsetur
verslunarinnar tekur listann saman.
Elskum ykkur,
E+H
Spring sale, last day tomorrow!
-
Spring sale! LAST DAY TOMORROW! 15% off with the code SUMMER2024 on my
website and on Ravelry through May 8th 2024, midnight GMT Why the code
SUMMER2024 an...
4 days ago
Enda er bókin frábær og endalaus uppspretta af æðislegum hugmyndum.
ReplyDeleteInnilega til hamingju með hana og að vera á top tíu listann.
Kær kv, Nína Margrét :)
Ég er ekki hissa enda snilldar bók.
ReplyDeleteTil hamingju!
kv. Lillý